Helgisaga um jólatréð
Einu sinn sendi Guð þrjá engla til að finna tré, sem hentaði sem jólatré. Þetta voru englar trúar, vonar og kærleika.
Þeir flugu af stað yfir fjöll og dali. Nýfallinn snjór lá yfir öllu, og það stirndi á hann í stjörnuskininu. Á leiðinni töluðu þeir um hverskonar tré þeir ættu að velja. Engill trúarinnar sagði: Tréð, sem ég kýs á að vera beinvaxið og toppur þess á að teygja sig í átt til himins. Það á að bera krossins tákn á greinum sínum.
Engill vonarinnar sagði: Ég kýs það tré sem visnar aldrei, heldur er grænt bæði sumar og vetur.
Engill kærleikans brostir blíðlega og sagði: Það tré sem ég kýs á að vera vinalegt tré, sem breiðir út greinar sínar og gefur skjól öllum smáfuglunum í skóginum”.
En hvaða tré varð svo fyrir valinu? Jú, grenitréð sem hafði krossins tákn á greinum sínum, það var sígrænt árið um kring og veitti fuglum himinsins skjól.
Þegar englarnir höfðu fundið tréð, vildi hver þeirra gefa því gjöf. Engill trúarinnar gaf því skínandi jólaljós, sem á að minna á hann, sem er ljós heimsins. Engill vonarinnar setti gullstjörnu á toppinn og Engill kærleikans hlóð jólagjöfum við fór þess.
(Kirkjan.is) |