Aðventan eða jólafasta spannar síðustu fjórar vikur fyrir jól. Þetta er sá tími sem við tökum frá til að undirbúa okkur fyrir komu frelsarans og til að minnast fæðingu hans. Einkennislitur aðventunnar samkvæmt Þjóðkirkjunni er fjólublár. Sjálf jólahátíðin ber síðan hvítan eða gylltan lit. Margir setja aðventuljós í glugga á þessum tíma og/eða setja upp aðventukrans sem eru fjögur kerti. Það er kveikt á einu fyrsta sunnudag í aðventu, næst á tveim, þá þrem og loks öllum fjórum.
Aðventukransinn á það sameiginlegt með flestu öðru skrauti sem er gert úr greinum sígrænna trjáa að hann er upprunninn í Þýskalandi eða norður Evrópu. Hið sígræna greni táknar lífið, sem er í Kristi. Hin logandi kerti benda til komu Jesú Krists hins lifandi ljós.
Aðventukertin
Við kveikjum einu kerti á.
Hans koma nálgast fer
sem fyrstu jól í jötu lá
og jesúbarnið er
Við kveikjum tveimur kertum á
og komu bíðum hans,
því drottinn sjálfur soninn þá
mun senda í líking manns.
Við kveikjum þremur kertum á,
því konungs beðið er,
þótt Jesús sjálfur jötu og strá
á jólun kysi sér.
Við kveikjum fjórum kertum á.
Brátt kemur gesturinn,
og allar þjóðir þurfa að sjá,
að það er frelsarinn.
S. Muri/Lilja Kristjánsdóttir

|