Þessi síða var gerð af Leikskólanum Bakka í tilefni Da Vinci í dag sýningarinnar sem er í Galleri 100° í húsi Orkuveitunnar.
Nememdnum og kennrum í leik- og grunnskóla gefst kostur á að heimsækja þessa glæsilegu sýningu til 28.nóvember.

Við á Bakka heimsóttum þessa sýningu 3.nóvember með elstu börnunum. Við mælum eindregið með þessar sýningu og börnin hafa sennilega gaman að fara þangað aftur með foreldrum til að sýna þeim þessa gripi. Gripirnir eru fengnir að láni úr safni um Leonardo, sem er í heimbæ hans, Vinci á Ítalíu.

Leonardo da Vinci er fæddur fyrir langa, langa löngu eða árið 1452 á Ítalíu. Honum fannst strax sem barn mjög skemmtilegt að teikna, lita og mála. Þó svo hann yrði fullorðinn þá hætti hann því ekki, heldur varð mjög fjölhæfur og fær listamaður.

Hendur

Honum fannst einnig mjög gaman að skoða, rannsaka og gera tilraunir. Fljótlega kom í ljós að hann var mikill hugvitsmaður og var áhugi hans sérstaklega á byggingalist og véltækni.

Leonardo hafði áhuga á öllu í kringum sig og grúskaði í mörgu, því mætti segja að hann hafi verið listamaður og þá bæði málari og myndhöggvari, vísindamaður, verkfræðingur, eðlisfræðingur, stærðfræðingur, líffærafræðingur og örugglega margt fleira.